Sunday, February 09, 2003

Þar sem ég er hættur að blogga nota ég bara síðuna mína undir námið. Hér höfum við ritgerð um sturlungu og sturlu þórðar.
Tekið skal fram að verkinu er ólokið
Sturlunga – Sturla Þórðarson og sagnaritun hans

Sturlunga er væntanlega merkileg bók fyrst hún hefur orðið þess verð að lenda á ritgerðalista hjá dr. Ármanni Jakobssyni. Hún hefur í gegnum tíðina verið ómældur áfrifavaldur sem fræðiverk og sem bókmenntaverk á íslenska tungu og menningu. Hún er einnig ómetanlegur fjársjóður fyrir Íslendinga sem hafa áhuga á arfleifð sinni. Við munum fjalla um Sturlungu ásamt því að fjalla um Sturlu Þórðarson sagnaritara sem skrifaði stóran hluta hennar. Við höfum þó ekki lesið Sturlungu en eftir að hafa kynnt okkur verkið mun ekki líða á löngu þangað til við munum hafa gert það.
Sturla Þórðarson var fæddur 29.júlí 1214. Hann var sonur Þórðar Sturlusonar eins af mestu höfðingjum sinna tíma. Hann var uppi á Sturlungaöld, frá um 1200 og þar til 1262/4, þ.e. þegar Gamli Sáttmáli var ritaður og Íslendingar játtust undir yfirráð Noregskonungs. Þórður, faðir Sturlu var sonur Hvamm-Sturlu ættföður Sturlungaættar. Bræður hans voru Snorri og Sighvatur. Snorri er vitaskuld þekktur fyrir ritverk sín, einsog Heimskringlu og Snorra-Eddu og var höfðingi í Borgarfirði og Sighvatur var höfðingi í Eyjafirði. Þessir menn og frændur þeirra mynduðu Sturlungaætt sem var valdamesta höfðingjaætt Sturlungaættar svo föðurætt Sturlu var ekki svo slæm. Hins vegar var móðir Sturlu hjákona Þórðar að nafni Þóra svo Sturla var óskilgetinn. Það varð þess valdandi að hann fékk ekki jafnmikinn arf og skilgetnir bræður hans og var ekki borinn til mannforráða. Sturla erfði þó ömmu sína Guðnýju Böðvarsdóttur og fékk þar mikið fé en Snorri föðurbróðir hans eignaði sér féð. Bræður Sturlu hétu Ólafur Hvítaskáld og Böðvar á Stað sem var faðir Þorgils Skarða sem hafði sig í frammi í valdabaráttu á seinni hluta Sturlungaldar. Líklegt er að Sturla hafi á uppvaxtarárum sínum verið í fóstri hjá Snorra föðurbróður sínum en árið 1235 þegar Sturla var 21 árs, sömdu Þórður faðir Sturlu og Snorri að Sturla skyldi vera með Snorra til þess líklega að Sturla myndi læra sagnaritun af Snorra sem hafði þá verið sagnaritari um nokkurt skeið.
Árið 1241 giftist Sturla Helgu Narfadóttur og eignaðist með henni fjögur börn, tvö af hvoru kyni. Þau hétu Guðný, Ingibjörg, Snorri og Þórður.
Sturla fór með hluta Snorrungagoðorðs frá árinu 1238 og bjó lengst af á Staðarhóli í Saurbæ en hafðist endrum og eins við á öðrum búum. Sturla var viðstaddur ýmsa merkilegustu atburði Sturlungaaldar, t.d. Apavatnsför og Flugumýrarbrennu. Hann gekk til liðs við Þórð kakala Sighvatssonar árið 1244 og gerðist lendur maður Gissurar jarls 1259. Sturla var sendur á fund Hákons Noregskonungs vorið 1263 og byrjaði þar að rita sögu hans og kom næst til Íslands árið 1271 með Járnsíðu, lögbók frá Magnúsi lagabæti konungi og varð þá lögmaður yfir öllu Íslandi. Eftir það var hann í nokkrum rólegheitum á Íslandi og var við skriftir en á árunum 1277-78 var Sturla í Noregi við ritun á sögu Magnúsar konungs. Síðustu æviárin dró hann sig algerlega í hlé frá deilum manna og sat við skriftir á Fagurey á Breiðafirði þar til hann dó 30. júlí 1284, sjötugur að aldri.
Aðalverk Sturlu er Íslendingabók sem er bróðurpartur Sturlungasögu og var hún rituð á árunum 1271-84. Hann tók ennfremur saman eina gerð Landnámu og er höfundur Kristnisögu og er einnig tengdur við ritun Grettissögu. Eftir Sturlu eru varðveitt mörg kvæði og brot m.a. um Magnús lagabæti, Þorgils skarða, og Hákon gamla.
Veraldlegar samtíðarsögur Sturlu eru ritaðar á sama tíma og atburðirnir gerast og eru því gríðarmikilvægar fyrir sakir heimildagildis um atburði 13. aldar en samtíðarsögurnar eru um atburði þeirra tíma gagnstætt ritunaraðferð Íslendingasagna sem eru ritaðar 200-400 árum eftir að atburðirnir gerast. Dæmi um veraldlega samtíðarsögu eftir Sturlu er höfuðverk hans, Íslendingabók.
Nú munum við víkja að Sturlungu sjálfri.
Sturlunga saga er samansafn veraldlegra samtíðarsagna sem voru ritaðar á 13. öld og greinir frá deilum veraldlegra höfðingja á 13. öld. Sögurnar voru ritaðar hver í sínu lagi en nálægt aldamótum 13. og 14. aldar var þessum sögum steypt saman í Sturlunga sögu og gerðar á þeim ýmsar breytingar s.s. styttingar og jafnvel samfelling sagna. Talið er líklegt að sá sem felldi sögurnar saman hafi verið Þórður Narfason, lögmaður á Skarði á Skarðsströnd, (d. 1308). Þó að breytingin hafi verið gerð á 13. öld þá kemur nafnið Sturlunga ekki fram fyrr en í heimildum frá 17. öld. Flestar sögur sem eru í Sturlungu eru einungis varðveittar í henni en textafræðingar hafa rýnt í handrit Sturlungu sem eru tvö, Króksfjarðarbók og Reykjafjarðarbók. Ekki er mikið varðveitt af þessum handritum en þó eru af Króksfjarðarbók varðveittir þrír fjórðu hlutar en ekki nema nokkur blöð af Reykjarfjarðarbók. Nokkuð auðvelt er talið að sundurgreina sögur Sturlungu þrátt fyrir töluverða ritstjórn við samsetningu hennar í fyrstu og árið 1878 voru þær fyrst sundurgreindar af fræðimanninum Guðmundi Vigfússyni. Síðan þá hefur sundurliðun sagnanna verið endurskoðuð margoft og teljast frumsögurnar nú: Þorgils saga og Hafliða, Sturlu saga, Prestsaga Guðmundar Arasonar, Guðmundar saga dýra, Hrafns saga Sveinbjarnarsonar, Íslendinga saga, Þórðar saga kakala og Svínfellinga saga. Það var samt ekki fyrr en á 17. öld sem Þorgilssögu Skarða var bætt inn í heildarmynd Sturlungu og má einnig bæta við þetta að Arons saga Hjörleifssonar er oft gefin út með Sturlungu þó að hún hafi aldrei tilheyrt heildarsafninu.
Augljóst er að það sem er merkilegt við Sturlungu er að hún varðveitir langflestar þær veraldlegu samtíðarsögur sem til eru. Þannig er Sturlunga, eins og hér hefur áður verið minnst á, ómetanleg heimild um atburði þá sem áttu sér stað í samskiptum og deilum manna á 13. öld.


Monday, December 23, 2002

Ég er að fara í boð til æskuvinar míns, Þórðar. Þó að Doddi baki/eldi/sjóði/steiki skötuna ekki sjálfur er hann samt ágætis náungi og ég lofa hann upp í hinar efstu hæðir. Teljið svo villurnar í textanum.

Sunday, December 22, 2002

Ég ætla ekki að tala um prófin, en eins og allir vita er danska asnalegt fag.
Það er mikið búið að vera að gerast, ég fór á einhverja rosalegustu tónleika í heimi eða COLDPLAY tónleikana. Það þarf ekki að orðlengja snilldina.
Svo fór ég í partý með handboltanum á föstudag ( þá handboltaliðinu, ekki boltanum sjálfum). Það er aldrei að vita hvort ég bloggi um það. Því er nú ver og miður að minnið er eitthvað að svíkja mig þannig að ég man ekki eftir neinu eftir klukkan 23:30.

Thursday, December 19, 2002

VÁ coldplaytónleikarnir voru rosalegir. Ég er í of miklu uppnámi til að skrifa meira núna.
Djöfull hlakka ég til að fara á coldplay í kvöld.

Sjitturinmaðr
Það er ótrúlegt að vera í jólafríi. T.d. fór einn og hálfur tími í að borða morgunmat...

Thursday, December 12, 2002

Mikið leiðist mér þegar vinir mínir slekja upp Ármann kennara þegar þeir vita að hann les bloggið þeirra. (sjá: halli, frikki, doddi, steindór og fleiri...) Ég ætla svo sannarlega ekki að sleikja hann upp, ekki það að mér finnist hann leiðinlegur, þvert á móti finnst mér hann hafa lífgað upp á annars staðlaða kennara en ég veit að hann metur fólk að verðleikum og íslenskukunnáttu.(kannski líka Lord of the Rings kunnáttu)


(takið eftir að þetta voru bara 2 málsgreinar, 3 með þessari)

Friday, December 06, 2002

Now I've heard there was a secret chord
That David played, and it pleased the Lord
But you don't really care for music, do you?
It goes like this
The fourth, the fifth
The minor fall, the major lift
The baffled king composing Hallelujah

Hallelujah
Hallelujah
Hallelujah
Hallelujah

Your faith was strong but you needed proof
You saw her bathing on the roof
Her beauty and the moonlight overthrew her
She tied you
To a kitchen chair
She broke your throne, and she cut your hair
And from your lips she drew the Hallelujah

Hallelujah, Hallelujah
Hallelujah, Hallelujah
You say I took the name in vain
I don't even know the name
But if I did, well really, what's it to you?
There's a blaze of light
In every word
It doesn't matter which you heard
The holy or the broken Hallelujah

Hallelujah, Hallelujah
Hallelujah, Hallelujah

I did my best, it wasn't much
I couldn't feel, so I tried to touch
I've told the truth, I didn't come to fool you
And even though
It all went wrong
I'll stand before the Lord of Song
With nothing on my tongue but Hallelujah

Hallelujah, Hallelujah
Hallelujah, Hallelujah
Hallelujah, Hallelujah
Hallelujah, Hallelujah
Hallelujah, Hallelujah
Hallelujah, Hallelujah
Hallelujah, Hallelujah
Hallelujah, Hallelujah
Hallelujah

vildi bara benda öllum á að Leonard cohen er bestur.
Þetta lag er líka til í ágætisflutningi jeff buckley
Það gekk ekkert gríðarlega vel í enskuprófinu í dag, samt betur en í söguprófinu í gær. Þegar ég sá próftöfluna hélt ég að þetta voru auðveldustu fögin...

Tuesday, December 03, 2002

Hvaða ruddi sem villist inn á bloggið mitt á að hunksast til að fara læra